Afli erlendra ríkja við Ísland 2009 og heimsaflinn 2008


  • Hagtíðindi
  • 21. desember 2010
  • ISSN: 1670-4541

  • Skoða PDF
Afli erlendra ríkja við Ísland var tæp 11 þúsund tonn árið 2009 miðað við tæp 59 þúsund tonn 2008. Færeyingar stunduðu aðallega veiðar hér við land á síðasta ári og mest var veitt af síld. Heimsaflinn var tæpar 90 milljónir tonna árið 2008 og dróst saman um 158 þúsund tonn frá árinu 2007. Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2008 en Íslendingar voru í 18. sæti heimslistans. (Leiðrétt útgáfa sett á vefinn 15. febrúar 2011.)

Til baka