FRÉTT VINNUMARKAÐUR 03. NÓVEMBER 2016

Á þriðja ársfjórðungi 2016 voru 199.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 194.300 starfandi og 5.200 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 84,5%, hlutfall starfandi mældist 82,3% og atvinnuleysi var 2,6%. Frá þriðja ársfjórðungi 2015 fjölgaði starfandi fólki um 8.400 og hlutfallið jókst um 1,8 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 1.500 manns og hlutfallið lækkaði um 0,9 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.700 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,9%. Atvinnulausir karlar voru 2.500 eða 2,3%. Atvinnuleysi var 3% á höfuðborgarsvæðinu og 1,9% utan þess.

Langtímaatvinnuleysi 11,9%
Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á þriðja ársfjórðungi 2016 höfðu 600 manns verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur samanborið við 1.400 manns á þriðja ársfjórðungi 2015. Langtímaatvinnuleysi, sem hlutfall af heildarfjölda atvinnulausra var 11,9% samanborið við 20,8% á sama tíma fyrir ári. Ef hlutfallið er tekið af öllum á vinnumarkaði þá voru 0,3% langtímaatvinnulausir samanborið við 0,7% árið áður.

Vinnutími
Á þriðja ársfjórðungi 2016 voru að jafnaði 165.000 manns við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins eða 84,9% sem eru starfandi og 69,9% af heildarmannfjölda 16-74 ára. Meðalfjöldi heildarvinnustunda á viku voru 41,4 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 45,6 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 25,8 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Vinnumarkaður á 3. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1284 , netfang kannanir@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.