Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2019, er 468,8 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,21% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 400,0 stig og lækkar um 0,42% frá júní 2019.

Sumarútsölur hafa víða verið í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 11,2% (áhrif á vísitöluna -0,49%). Verð á húsgögnum lækkaði um 9,2% (-0,12%). Verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 6,3% frá fyrri mánuði (0,10%). Verð á hótelum og veitingastöðum hækkaði um 1,9% (0,11%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,1% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,8%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2019, sem er 468,8 stig, gildir til verðtryggingar í september 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.256 stig fyrir september 2019.

Breytingar á vísitölu neysluverðs 2018-2019
Maí 1988 = 100 Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala Breytingar í
hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu12 mánuði, %
2018
Júlí454,80,00,52,33,62,7
Ágúst455,70,22,43,52,82,6
September456,80,22,91,92,12,7
Október459,40,67,04,13,22,8
Nóvember460,50,22,94,33,93,3
Desember463,90,79,26,44,13,7
2019
Janúar462,0-0,4-4,82,33,23,4
Febrúar462,90,22,42,13,23,0
Mars465,30,56,41,23,82,9
Apríl467,00,44,54,43,33,3
Maí468,00,22,64,53,33,6
Júní469,80,44,73,92,63,3
Júlí468,8-0,2-2,51,63,03,1

Talnaefni