Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl 2014 er 421,0 stig (maí 1988=100) og hækkaði um 0,31% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 396,0 stig og hækkaði um 0,05% frá mars.
Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) jókst um 1,4% (vísitöluáhrif 0,20%). Verð á farsímaþjónustu lækkaði um 7,6% (-0,12%) og dagvörur um 0,6% (-0,11%). Verð á bensíni og olíum hækkaði um 2,6% (0,11%) og flugfargjöld hækkuðu um 6,0% (0,11%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,3% og vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 1,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,2% sem jafngildir 5,0% verðbólgu á ári (4,7% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í apríl 2014, sem er 421,0 stig, gildir til verðtryggingar í júní 2014. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 8.313 stig fyrir júní 2014.
Vísitala neysluverðs í apríl reiknuð á nýjum grunni, mars 2014, og byggist hann á niðurstöðum úr rannsókn Hagstofu Íslands á útgjöldum heimila fyrir árin 2010–2012. Auk útgjaldarannsóknarinnar hefur Hagstofan notast við ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins, svo sem um tölur um nýskráningar bifreiða. Innbyrðis vægi dagvöruverslana hefur verið endurskoðað og eru áhrif þeirrar breytingar 0,02% til hækkunar. Að öðru leyti veldur endurnýjun grunnsins sem slík ekki breytingum á vísitölunni milli mars og apríl. Hlutfallslega skiptingu vísitölunnar á gömlum og nýjum grunni í mars 2014 má finna í meðfylgjandi minnisblaði.
Við grunnskiptin nú í apríl er gerð sú breyting að verðmælingar á flugi eru teknar inn í útreikning vísitölunnar í þeim mánuði sem ætluð ferð er farin. Þetta er til samræmis við nýjar viðmiðunarreglur um útreikning samræmdrar vísitölu neysluverðs á evrópska efnahagssvæðinu. Áhrif aðgerðarinnar koma fram í vísitölunni frá apríl til júní 2014. Nánari upplýsingar má finna í meðfylgjandi minnisblaði um flugfargjöld.
Vísitala neysluverðs eftir eðli og uppruna 2014 | ||||
Undirvísitölur mars 1997=100 | Breyting síðustu 12 mánuði | |||
Áhrif á vísit. | ||||
Mars | Apríl | % | ||
Vísitala neysluverðs | 235,2 | 235,9 | 2,3 | 2,3 |
Þar af: | ||||
Innlendar vörur og grænmeti | 212,5 | 211,8 | 1,1 | 0,1 |
Búvörur og grænmeti | 199,7 | 198,9 | 1,7 | 0,1 |
Innlendar vörur án búvöru | 221,6 | 221,3 | 0,6 | 0,0 |
Innfluttar vörur alls | 201,9 | 201,9 | -0,8 | -0,3 |
Innfluttar vörur án áfengis og tóbaks | 193,0 | 192,9 | -1,1 | -0,3 |
Dagvara | 210,0 | 208,6 | -0,1 | 0,0 |
Breytingar vísitölu neysluverðs 2013–2014 | ||||||
Maí 1988 = 100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | |||||
Breytingar í hverjum mánuði, % | ||||||
Síðasta mánuð, % | Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
Vísitala | ||||||
2013 | ||||||
Apríl | 411,5 | 0,2 | 2,4 | 8,4 | 5,5 | 3,3 |
Maí | 411,3 | 0,0 | -0,6 | 1,4 | 4,7 | 3,3 |
Júní | 413,5 | 0,5 | 6,6 | 2,8 | 5,7 | 3,3 |
Júlí | 412,4 | -0,3 | -3,1 | 0,9 | 4,6 | 3,8 |
Ágúst | 413,8 | 0,3 | 4,2 | 2,5 | 1,9 | 4,3 |
September | 415,2 | 0,3 | 4,1 | 1,7 | 2,2 | 3,9 |
Október | 415,2 | 0,0 | 0,0 | 2,7 | 1,8 | 3,6 |
Nóvember | 416,7 | 0,4 | 4,4 | 2,8 | 2,6 | 3,7 |
Desember | 418,9 | 0,5 | 6,5 | 3,6 | 2,6 | 4,2 |
2014 | ||||||
Janúar | 415,9 | -0,7 | -8,3 | 0,7 | 1,7 | 3,1 |
Febrúar | 418,7 | 0,7 | 8,4 | 1,9 | 2,4 | 2,1 |
Mars | 419,7 | 0,2 | 2,9 | 0,8 | 2,2 | 2,2 |
Apríl | 421,0 | 0,3 | 3,8 | 5,0 | 2,8 | 2,3 |
Talnaefni