FRÉTT VERÐLAG 30. APRÍL 2009

Vísitala framleiðsluverðs í mars 2009 var 153,1 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 1,6% frá febrúar 2009. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 187,1 stig, sem er lækkun um 1,0% (vísitöluáhrif -0,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 142,4 stig, lækkaði um 5,2% (-1,4%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,2% frá febrúar og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 1,6% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,2% milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir lækkaði hún um 2,4% (-1,6%).

Frá mars 2008 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 11,6% og verðvísitala sjávarafurða um 19,2%. Á sama tíma hafa afurðir stóriðju lækkað um 15,3% en matvælaverð hefur hækkað um 21,7%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Mars 9,2 12,6 20,8 1,0 -0,9 15,1
Apríl 6,3 3,2 11,7 6,3 6,7 6,1
Maí 1,1 -0,4 0,4 1,4 2,5 0,4
Júní 3,7 7,4 3,4 0,2 0,4 5,6
Júlí 2,4 -0,3 1,9 0,4 3,1 2,0
Ágúst 1,9 0,2 7,8 0,6 0,3 2,8
September 3,9 8,6 1,4 1,5 1,2 5,4
Október 12,7 20,3 14,7 3,4 3,1 17,8
Nóvember 5,4 9,9 2,2 3,7 2,7 6,8
Desember -7,1 -6,4 -18,5 2,8 2,1 -11,7
2009
Janúar -7,3 -5,4 -17,0 0,2 0,1 -11,0
Febrúar -8,3 -14,1 -12,7 -0,3 2,3 -13,3
Mars -1,6 -1,0 -5,2 -0,2 0,2 -2,4

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2008
Mars 12,5 24,8 10,3 5,6 2,5 18,3
Apríl 20,3 28,3 27,8 12,1 9,2 26,6
Maí 24,7 33,4 29,9 13,7 12,5 31,7
Júní 29,5 44,7 36,1 14,1 12,0 40,1
Júlí 35,7 44,3 48,3 14,4 16,8 47,4
Ágúst 31,9 36,7 46,4 15,2 16,3 41,1
September 39,6 47,3 62,0 15,9 17,8 53,1
Október 61,4 80,4 101,5 19,2 21,5 87,9
Nóvember 68,5 93,1 101,2 22,4 26,3 96,1
Desember 53,2 77,3 56,8 25,7 28,3 67,8
2009
Janúar 39,2 62,7 31,1 24,3 24,8 47,2
Febrúar 23,8 35,5 8,0 23,2 25,9 22,6
Mars 11,6 19,2 -15,3 21,7 27,3 3,9

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í mars 2009 var 3,7% hærra en í febrúar 2009 en 34,0% hærra en í mars 2008. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.