FRÉTT VERÐLAG 19. OKTÓBER 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 118,6 stig (1996=100) í september sl. og hækkaði um 0,4% frá ágúst. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 130,9 stig, hún hækkaði um 1,6% frá fyrra mánuði.

Frá september 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,5% að meðaltali í ríkjum EES, 2,6% á evrusvæðinu og 1,6% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,4% í Lettlandi, 4,9% í Eistlandi og 4,7% í Lúxemborg. Minnst var verðbólgan 1,1%  í Svíþjóð og Finnlandi en 1,6% á Íslandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Ágúst 2004 - ágúst 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.