FRÉTT VERÐLAG 19. OKTÓBER 2004

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 115,7 stig (1996=100) í september sl. og hækkaði um 0,2% frá ágúst. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 128,9 stig, hækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði.
       Frá september 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,0% að meðaltali í ríkjum EES, 2,1% á evrusvæðinu og 2,8% á Íslandi.
       Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,7% í Lettlandi og 6,7% í Ungverjalandi. Minnst var verðbólgan í Finnlandi, 0,2% og í Danmörku, 0,9%.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Ágúst 2003 - ágúst 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.