FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 04. SEPTEMBER 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 44,1 milljarði króna í ágúst 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og verðmæti vöruinnflutnings (fob) 55,3 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 11,2 milljarða króna. Í ágúst 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 12,2 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 1,8 milljörðum króna lægra í ágúst 2020 en í ágúst 2019 eða sem nemur 3,9% á gengi hvors árs. Útflutningur á iðnaðarvörum dróst saman en á móti kom aukning í útflutningi á sjávarafurðum.

Verðmæti vöruinnflutnings í ágúst 2020 var 2,8 milljörðum króna lægra en í ágúst 2019 eða 4,8% á gengi hvors árs. Lækkunina má aðallega rekja til minni innflutnings á eldsneyti.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.