FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. SEPTEMBER 2009


Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,1 milljarð króna og inn fyrir tæpa 31,5 milljarða króna fob (34,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,6 milljarða króna. Í ágúst 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 4,7 milljarða króna á sama gengi.¹

Fyrstu átta mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 297,6 milljarða króna en inn fyrir 252,9 milljarða króna fob (276,6 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 44,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 76,1 milljarð á sama gengi.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því 120,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Tölur fyrri mánaða um innflutning á hrá- og rekstrarvörum hafa verið leiðréttar til hækkunar um 7,9 milljarða.

Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 104,4 milljörðum eða 26,0% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 28,8% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á sjávarafurðum.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 225,1 milljarði eða 47,1% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar-ágúst 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-ágúst
Ágúst  Janúar-ágúst
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 46.434 44.086 401.944 297.572 -26,0
Innflutningur alls fob 51.100 31.449 478.011 252.914 -47,1
Vöruskiptajöfnuður -4.666 12.637 -76.067 44.658 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-ágúst 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst
Ágúst Janúar-ágúst
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 31.353,1 44.085,8 272.874,6 297.571,5 -26,0
Sjávarafurðir 10.807,9 19.353,0 100.056,2 132.579,9 -10,0
Landbúnaðarvörur 314,0 436,6 3.060,5 4.662,0 3,4
Iðnaðarvörur 19.295,0 23.125,4 140.120,9 146.951,1 -28,8
Aðrar vörur 936,2 1.170,8 29.637,0 13.378,5 -69,4
Innflutningur alls fob 34.503,6 31.448,9 324.515,5 252.913,5 -47,1
Matvörur og drykkjarvörur 2.309,9 4.003,0 23.779,2 27.327,3 -22,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.s. 13.050,3 9.187,4 98.360,9 82.559,5 -43,0
Eldsneyti og smurolíur 3.748,8 3.713,8 36.388,2 31.104,8 -42,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.219,9 7.810,0 71.700,0 56.536,5 -46,5
Flutningatæki 2.262,5 1.574,1 50.743,4 16.675,8 -77,7
Neysluvörur ót.a.s. 4.861,0 5.118,3 43.297,8 38.368,6 -39,8
Vörur ót.a.s. (t.d. endursendar vörur) 51,3 42,2 246,0 341,0 -5,9
Vöruskiptajöfnuður -3.150,5 12.636,9 -51.641,0 44.658,0 ·


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 47,3% hærra mánuðina janúar–ágúst 2009 en sömu mánuði fyrra árs.

Í ágúst 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 48.1% hærra en í ágúst árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.