Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir apríl 2009 nam útflutningur fob 31,7 milljörðum króna og innflutningur fob 29,4 milljörðum króna. Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.
Vísbendingar eru um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða og iðnaðarvara en meira verðmæti innfluttra hrá- og rekstrarvara í apríl 2009 miðað við mars 2009.