Heildarútflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi 2014 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 173,3 milljarðar króna en innflutningur á þjónustu 93,1 milljarður. Þjónustujöfnuður við útlönd var því jákvæður um 80,2 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi en var jákvæður um 69,9 milljarða á sama tíma árið 2013 á gengi hvors árs.
Ferðaþjónusta er í fyrsta skipti stærsti þjónustuliður í bæði inn- og útflutningi og var afgangur af henni 37,4 milljarðar. Útflutningur hennar nam 66,9 milljörðum og innflutningur 29,5 milljörðum. Afgangur vegna ferðaþjónustu voru rúmir 27 milljarðar á sama ársfjórðungi árið 2013.
Mestur afgangur var hinsvegar af samgöngu- og flutningaþjónustu eða 47,4 milljarðar. Útflutningur þeirra nam 64,9 milljörðum og innflutningur 17,5 milljörðum.
Önnur innflutt viðskiptaþjónusta nam 27,5 milljörðum og útflutningur 10,3 milljörðum á þriðja ársfjórðungi. Halli var því mestur af þeirri þjónustu eða 17,3 milljarðar.
Samhliða þessari útgáfu hefur brúartafla verið uppfærð. Taflan sýnir breytingar á útgefnum tölum á vöru- og þjónustuviðskiptum og tölum um viðskipti eins og þau birtast í greiðslujöfnuði. Breytingar hafa verið gerðar á niðurstöðum fyrir fyrsta ársfjórðung 2010.
Þjónustuviðskipti við útlönd 2014 | ||||
Alls | 1. ársfj. 2014 | 2. ársfj. 2014 | 3. ársfj. 2014 | |
Verðmæti í milljónum króna | ||||
Útflutt þjónusta | 387.736,6 | 92.723,1 | 121.695,6 | 173.318,0 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 18.072,0 | 5.412,0 | 5.435,8 | 7.224,3 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | 3.134,3 | 971,6 | 1.043,4 | 1.119,3 |
3. Samgöngur og flutningar | 150.412,3 | 38.108,6 | 47.402,8 | 64.900,9 |
4. Ferðalög | 131.372,1 | 23.896,5 | 40.532,1 | 66.943,5 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | 2.864,9 | 1.303,5 | 1.150,1 | 411,3 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | 1.945,5 | 631,1 | 625,5 | 689,0 |
7. Fjármálaþjónusta | 13.531,2 | 4.389,2 | 4.489,5 | 4.652,5 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | 12.942,1 | 1.362,1 | 2.658,1 | 8.921,9 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 17.347,8 | 5.607,1 | 6.127,9 | 5.612,8 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | 28.741,1 | 9.016,8 | 9.454,8 | 10.269,5 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | 5.482,0 | 1.479,5 | 2.131,0 | 1.871,6 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 1.891,3 | 545,3 | 644,6 | 701,4 |
Innflutt þjónusta | 258.658,2 | 76.971,1 | 88.608,4 | 93.078,7 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | 12.966,4 | 4.305,0 | 3.992,5 | 4.668,9 |
3. Samgöngur og flutningar | 43.943,4 | 12.759,8 | 13.683,9 | 17.499,6 |
4. Ferðalög | 81.164,3 | 22.106,0 | 29.564,6 | 29.493,7 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | 961,2 | 351,4 | 236,1 | 373,7 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | 3.455,1 | 1.367,9 | 1.015,0 | 1.072,1 |
7. Fjármálaþjónusta | 9.551,8 | 3.205,7 | 3.189,1 | 3.157,0 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | 9.160,4 | 2.506,6 | 3.110,4 | 3.543,4 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 13.981,4 | 5.199,4 | 4.707,8 | 4.074,2 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | 77.738,3 | 23.275,8 | 26.916,6 | 27.545,9 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | 3.879,3 | 1.138,6 | 1.506,9 | 1.233,8 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 1.856,6 | 754,8 | 685,3 | 416,4 |
Þjónustujöfnuður | 129.078,5 | 15.752,0 | 33.087,2 | 80.239,2 |
1. Framleiðslutengd þjónusta á vörum í eigu annara | 18.072,0 | 5.412,0 | 5.435,8 | 7.224,3 |
2. Viðgerðir og viðhald ót.a. | -9.832,1 | -3.333,4 | -2.949,1 | -3.549,6 |
3. Samgöngur og flutningar | 106.468,9 | 25.348,7 | 33.719,0 | 47.401,2 |
4. Ferðalög | 50.207,8 | 1.790,5 | 10.967,5 | 37.449,8 |
5. Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð | 1.903,7 | 952,1 | 914,0 | 37,6 |
6. Trygginga- og lífeyrisþjónusta | -1.509,5 | -736,8 | -389,5 | -383,2 |
7. Fjármálaþjónusta | 3.979,4 | 1.183,5 | 1.300,4 | 1.495,5 |
8. Gjöld fyrir notkun hugverka ót.a. | 3.781,8 | -1.144,5 | -452,3 | 5.378,6 |
9. Fjarskipta-, tölvu- og upplýsingaþjónusta | 3.366,4 | 407,7 | 1.420,0 | 1.538,7 |
10. Önnur viðskiptaþjónusta | -48.997,2 | -14.259,0 | -17.461,8 | -17.276,5 |
11. Menningar- og afþreyingarþjónusta | 1.602,7 | 340,9 | 624,0 | 637,8 |
12. Opinber þjónusta ót.a. | 34,7 | -209,6 | -40,7 | 284,9 |
Talnaefni