FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 27. OKTÓBER 2006


Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 22,3 milljarða króna og inn fyrir 29,9 milljarða króna fob (32,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 7,6 milljarða króna. Í september 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 12,0 milljarða króna á föstu gengi¹.

Fyrstu níu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 173,2 milljarða króna en inn fyrir 275,4 milljarða króna fob (298,5 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 102,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 75,2 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 11,1 milljarði eða 6,8% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 54,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski, frystum flökum og söltuðum og/eða þurrkuðum fiski en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystri rækju. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 21,7% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkunar álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kísiljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 38,0 milljörðum fob eða 16,0% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 21,0 milljarð, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 40,1%. Innflutningur hrá- og rekstrarvöru jókst um 29,4%, eða um 16,8 milljarða. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 14,4% aukningar, eða um 3,4 milljarða. Innflutningur á neysluvöru, annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 9,2% eða 3,4 milljarða en hverfandi aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Aftur á móti dróst innflutningur á flutningatækjum saman um 13,7%, eða um 7,0 milljarða, aðallega vegna minni flugvélainnflutnings.

Vöruskiptin við útlönd janúar–september 2006
Millj. kr á gengi ársins 2006 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Janúar-september
September  Janúar-september
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 19.595 22.306 162.162 173.235 6,8
Innflutningur alls fob 31.601 29.917 237.397 275.386 16,0
Vöruskiptajöfnuður -12.006 -7.611 -75.235 -102.151 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–september 2005 og 2006
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-september
September Janúar-september
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 16.911,1 22.306,1 147.877,5 173.235,3 6,8
Sjávarafurðir 8.340,6 11.326,0 83.319,6 94.452,8 3,4
Landbúnaðarvörur 377,6 405,1 2.613,0 2.757,5 -3,8
Iðnaðarvörur 5.724,4 9.179,8 49.797,8 66.481,4 21,7
Aðrar vörur 2.468,5 1.395,2 12.147,1 9.543,7 -28,4
Innflutningur alls fob 27.272,6 29.917,0 216.485,0 275.386,3 16,0
Matvörur og drykkjarvörur 1.597,8 1.894,4 14.649,0 16.362,5 1,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 6.557,0 7.627,8 52.017,5 73.810,4 29,4
Eldsneyti og smurolíur 4.969,9 5.979,1 21.644,0 27.158,0 14,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 5.503,0 6.297,3 47.758,1 73.363,7 40,1
Flutningatæki 4.330,2 3.322,6 46.518,6 44.018,1 -13,7
Neysluvörur ót.a. 4.308,6 4.760,4 33.689,9 40.354,3 9,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 6,1 35,4 207,9 319,3 40,0
Vöruskiptajöfnuður -10.361,5 -7.610,9 -68.607,5 -102.150,9 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 9,7% hærra mánuðina janúar–september 2006 en sömu mánuði fyrra árs.
Í september 2006 var meðalverð erlends gjaldeyris 15,9% hærra en í september árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.