FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 02. JÚNÍ 2010

Við úrvinnslu fréttar um verðmæti sjávarafla janúar-febrúar urðu þau mistök að ósamræmi kom fram í tölum yfir hlutfallsbreytingar í verðmæti afla á milli ára. Tölur yfir breytingar í verðmæti uppsjávar- og flatfisksafla á milli ára áttu við breytingar frá febrúar 2009 til febrúar 2010. Réttilega hefðu þessar breytingar átt að ná yfir janúar-febrúar 2009 til sama tímabils 2010. Hér á eftir birtist leiðrétt frétt ásamt yfirlitstöflu.

Aflaverðmæti 20,6 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 20,6 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2010 samanborið við 12,3 milljarð á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 4,5 milljarða eða 28,1% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok febrúar orðið 16,3 milljarðar og jókst um 29,7% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 12,6 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 9,5 milljarðar og jókst um 34,1% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 2,9 milljörðum og jókst um 21,7%, en verðmæti karfaaflans nam rúmum 1,8 milljörðum, sem er 18% aukning frá fyrstu tveimur mánuðum ársins 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 39,1% milli ára í 840 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 1,3 milljörðum króna í janúar til febrúar 2010, sem er 16,7% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 23% milli ára og nam tæpum 3 milljörðum.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 9,5 milljörðum króna og jókst um 29,2% frá árinu 2009. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 38,9% milli ára og var um 3,8 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 5,6 milljarðar sem 58,6% aukning milli ára.

Verðmæti afla janúar-febrúar 2010      
Milljónir króna Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 8.747,2 12.256,1 16.076,7 20.593,3 28,1
             
Botnfiskur 6.724,5 9.283,3 12.575,0 16.304,7 29,7
  Þorskur 3.681,2 5.242,8 7.080,4 9.497,8 34,1
  Ýsa 1.272,0 1.588,0 2.353,9 2.865,7 21,7
  Ufsi 314,9 442,9 604,1 840,2 39,1
  Karfi 955,0 1.302,0 1.533,3 1.808,6 18,0
  Úthafskarfi 0,0 0,0 0,0 0,0 -
  Annar botnfiskur 501,4 707,6 1.003,4 1.292,3 28,8
Flatfisksafli 574,3 729,9 1.077,9 1.257,6 16,7
Uppsjávarafli 1.435,9 2.202,7 2.401,4 2.954,3 23,0
  Síld 365,7 110,8 887,1 319,2 -64,0
  Loðna 340,8 1.596,0 340,8 1.596,0 368,3
  Kolmunni 47,6 9,1 396,5 288,2 -27,3
  Annar uppsjávarafli 681,8 486,9 777,1 750,9 -3,4
Skel- og krabbadýraafli 7,7 37,2 14,5 71,4 392,8
  Rækja 6,9 37,2 13,0 71,1 448,5
  Annar skel- og krabbad.afli 0,7 0,0 1,5 0,3 -81,1
Annar afli 4,8 3,0 8,0 5,3 -33,9

 

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-febrúar 2010    
Milljónir króna Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 8.747,2 12.256,1 16.076,7 20.593,3 28,1
             
  Til vinnslu innanlands 3.890,8 5.597,3 7.357,0 9.505,4 29,2
  Í gáma til útflutnings 993,6 906,0 2.022,8 1.624,0 -19,7
  Landað erlendis í bræðslu 1,7 0,0 72,0 0,0
  Sjófryst 2.419,1 3.915,3 3.512,6 5.569,6 58,6
  Á markað til vinnslu innanlands 1.261,5 1.754,9 2.709,8 3.764,1 38,9
  Á markað, í gáma til útflutnings* 80,7 210,4
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 1,0 21,3 1,8 21,4 1.118,6
  Selt úr skipi erlendis 28,3 0,0 69,7 0,0
  Fiskeldi 4,4 0,0 6,8 0,1 -98,9
  Aðrar löndunartegundir 66,0 61,4 113,8 108,7 -4,5
*Fyrir árið 2010 er ekki hægt að birta sundurliðaðar tölur um afla  sem seldur er í gegnum uppboðsmarkað innanlands og fer síðan í gám til útflutnings (og er unninn í útlöndum).
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-febrúar 2010
Milljónir króna Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 8.747,2 12.256,1 16.076,7 20.593,3 28,1
             
  Höfuðborgarsvæði 1.485,6 2.444,5 2.525,6 3.883,5 53,8
  Suðurnes 1.709,8 2.150,4 3.458,1 4.113,1 18,9
  Vesturland 699,1 688,9 1.290,1 1.282,4 -0,6
  Vestfirðir 503,4 459,9 909,9 1.170,7 28,7
  Norðurland vestra 337,3 983,2 547,3 1.228,1 124,4
  Norðurland eystra 1.258,9 1.622,0 2.121,4 2.646,6 24,8
  Austurland 853,5 1.747,1 1.661,3 2.520,7 51,7
  Suðurland 986,1 1.254,2 1.594,3 2.124,3 33,2
  Útlönd 913,5 905,8 1.968,8 1.623,8 -17,5

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.