FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. JANÚAR 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 10,3% minni en í desember 2008. Árið 2009 jókst aflinn um 2,9% miðað við árið 2008, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn í desember 2009 var 57.635 tonn samanborið við 85.639 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli stóð í nokkurn veginn stað frá desember 2008 og nam tæpum 33.200 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 14.800 tonnum, sem er um 2.700 tonna aukning frá árinu áður. Ýsuaflinn nam tæpum 4.200 tonnum sem er um 1.800 tonnum minni afli en í desember 2008. Ufsaaflinn dróst saman um tæp 1.200 tonn og nam rúmum 5.500 tonnum. Um 3.900 tonn veiddust af karfa sem er  1.100 tonnum minni afli en í desember 2008.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 22.600 tonnum sem er um 28.000 tonnum minni afli en í desember 2008. Skýrist sú breyting af 34.300 tonnum minni síldarafla frá árinu áður, en í desember veiddust einnig um 6.100 tonn af gulldeplu. Nær ekkert var veitt af henni í desember 2008.
 
Flatfiskaflinn var rúm 1.500 tonn í desember 2009 samanborið við 2.000 tonna afla í desember 2008. Skel- og krabbadýraafli nam 229 tonnum í desember 2009.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.