FRÉTT MENNING 23. MARS 2011

Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var 416 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. Áhorfendum á síðasta leikári fjölgaði um 61 þúsund frá því á leikárinu á undan, eða um 17 af hundraði. Á síðasta leikári voru færðar á fjalirnar 236 uppfærslur á vegum leikhúsa, leikhópa og leikfélaga, sem sýndar voru 2.352 sinnum.

Heildarfjöldi gesta leikhúsa, leikhópa og félaga á leikárunum 2000/2001– 2009/2010 er sýndur á meðfylgjandi mynd. Inni í tölum um aðsókn eru gestir á sýningar leikhúsa, leikhópa og leikfélaga í skólum og á innlendar og erlendar gestasýningar.

Leikhús
Á síðasta leikári voru starfrækt fimm atvinnuleikhús með aðstöðu í fjórum leikhúsum. Á vegum þeirra voru tíu leiksvið sem rúmuðu 2.553 gesti í sæti. Leikhúsin settu á svið 76 uppfærslur á eigin vegum eða í samstarfi við aðra. Uppfærslum fækkaði um 17 frá fyrra leikári. Af tegund einstakra verka sem voru færð á fjalirnar voru leikrit flest, eða 43 talsins. Uppfærslur með verkum eftir íslenska höfunda voru 40, en eftir erlenda 24. Uppfærslur eftir innlenda og erlenda höfunda voru 12. Samanlagður fjöldi sýninga í leikhúsum á síðasta leikári var 1.196, eða nokkru fleiri en á fyrra leikári. Sýningargestir í leikhúsum voru 305.542, eða tæplega 30 þúsund fleiri en á fyrra leikári.

Atvinnuleikhópar
Atvinnuleikhópar sem settu upp eina eða fleiri leiksýningu á síðasta leikári voru 54 talsins samanborið við 46 leikárið 2008/2009. Á síðasta leikári settu hóparnir á svið 91 uppfærslu innanlands, þar af voru 15 í samstarfi við leikhúsin. Leikrit og verk eftir innlenda höfunda voru uppistaðan í uppfærslum atvinnuleikhópa, eða þrjár af hverjum fjórum uppfærslum. Atvinnuleikhópar sýndu innanlands 881 sinnum á leikárinu. Heildaraðsókn að sýningum atvinnuleikhópa á síðasta leikári var 156.012 gestir. Sýningargestum atvinnuleikhópa fjölgaði um 83 þúsund  á síðasta leikári frá næsta leikári á undan.

Áhugaleikfélög
Á næstliðnu leikári færðu 35 áhugaleikfélög á svið 84 leiksýningar víðs vegar um landið. Þrjár af hverjum fjórum uppfærslum voru leikverk eftir innlenda höfunda. Félögin sýndu 546 sinnum fyrir 36 þúsund gesti. Gestum að sýningum áhugaleikfélaga fækkaði um tíu af hundraði milli leikára.

Um tölurnar
Árleg gagnasöfnun Hagstofunnar um leiksýningar tekur til leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga. Tölur eru fengnar með góðfúslegu samþykki frá viðkomandi leikhúsum og samtökum atvinnuleikhúsa og áhugaleikfélaga, Sjálfstæðu leikhúsunum og Bandalagi íslenskra leikfélaga.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.