FRÉTT LAUN OG TEKJUR 16. MARS 2012

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 2. september 2013 9:00 frá upprunalegri útgáfu. 

Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 6,9% milli áranna 2010 og 2011 samkvæmt ársmeðaltali vísitölu launa. Þá hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 7,6% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna um 5,2%.

Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun sérfræðinga mest á milli ára eða um 8,9% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst eða um 6,2%. Á sama tímabili var hækkun launa eftir atvinnugreinum á bilinu 4,7% til 10,0%. Mest hækkuðu laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Þessar niðurstöður má finna í nýju hefti Hagtíðinda, Vísitala launa 2011. Í heftinu er fjallað um vísitölu launa og gerð grein fyrir þróun hennar á árinu 2011. Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en heildarvísitala fyrir opinbera starfsmenn.

Vísitala launa 2011 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.