FRÉTT LAUN OG TEKJUR 23. MARS 2009


Launavísitala óbreytt frá fyrri mánuði

Launavísitala í febrúar 2009 er 355,7 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,7%.

Kaupmáttur launa dróst saman um 0,5% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í febrúar er 108,4 stig og lækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 9,3%.

Launavísitala 2008-2009
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2008
Febrúar 333,5 0,8 9,7 7,9 6,8
Mars 337,6 1,2 14,2 9,2 7,8
Apríl 340,5 0,9 12,1 10,0 8,2
Maí 342,0 0,4 10,6 10,1 7,9
Júní 346,2 1,2 10,6 12,4 8,5
Júlí 348,8 0,7 10,1 11,1 9,1
Ágúst 350,4 0,5 10,2 10,4 9,1
September 352,2 0,5 7,1 8,8 9,0
Október 353,3 0,3 5,3 7,7 8,8
Nóvember 351,3 -0,6 1,0 5,5 7,8
Desember 353,6 0,7 1,6 4,3 8,3
Meðaltal 345,0 . . . 8,1
2009
Janúar 355,7 0,6 2,7 4,0 7,5
Febrúar 355,7 0,0 5,1 3,0 6,7
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.