FRÉTT IÐNAÐUR 19. DESEMBER 2012

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan desember 2012 er 115,8 stig (desember 2009=100) sem er hækkun um 0,2% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni hækkaði um 0,9%, sem skýrir hækkun vísitölunnar.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,1%.

Vegna þess að innleiðing nýrrar byggingarreglugerðar nr. 112 frá 2012 stendur fyrir dyrum vill Hagstofan koma því á framfæri að þessi breyting hefur ekki verðáhrif á mælingu vísitölu byggingarkostnaðar. Vísitala byggingarkostnaðar er fastgrunnsvísitala sem mælir verð á aðföngum tiltekins vísitöluhúss. Í nýrri byggingarreglugerð eru gerðar kröfur um breytta byggingarhætti og aukin gæði bygginga. Þessháttar gæðabreytingar eru innleiddar í vísitöluna með grunnskiptum, þar sem nýtt vísitöluhús er magntekið. Grunnskipti hafa engin áhrif til hækkunar eða lækkunar vísitölunnar. Hagstofan getur ekki hafist handa við grunnskipti fyrr en fyrir liggja húsbyggingar sem uppfylla nýja byggingarreglugerð og hægt er að nota við magntöku á nýjum grunni vísitölunnar.

Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2012-2013      
Vísitala  Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Gildistími janúar 2010=100 Útreikn- tími des. 2009=100 Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2012
Janúar 112,3 111,2 -1,0 -10,9 -0,7 0,8 9,6
Febrúar 111,2 113,0 1,6 21,2 5,0 4,5 11,2
Mars 113,0 113,4 0,4 4,7 4,2 3,8 10,6
Apríl 113,4 115,0 1,4 18,4 14,5 6,6 7,8
Maí 115,0 114,9 -0,1 -0,8 7,1 6,1 7,0
Júní 114,9 115,4 0,4 4,5 7,1 5,6 5,0
Júlí 115,4 115,1 -0,2 -2,9 0,2 7,1 3,9
Ágúst 115,1 114,8 -0,3 -3,0 -0,5 3,2 3,9
September 114,8 115,2 0,3 3,9 -0,7 3,1 3,5
Október 115,2 114,9 -0,2 -2,5 -0,6 -0,2 3,2
Nóvember 114,9 115,5 0,5 6,5 2,6 1,0 3,5
Desember 115,5 115,8 0,2 2,7 2,2 0,7 3,1
2013
Janúar 115,8 . . . . . .

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.