Vöruviðskipti við útlönd 2011


  • Hagtíðindi
  • 16. maí 2012
  • ISSN: 1670-4649


Sækja pdf skjal
Árið 2011 voru fluttar út vörur fyrir 620,1 milljarð króna fob en inn fyrir 523,0 milljarða króna fob, 561,6 milljarða króna cif. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti út- og innflutnings, sem nam 97,1 milljarði króna en 120,2 milljarða króna afgangur var árið 2010. Verðmæti vöruútflutnings jókst um 10,5% frá fyrra ári á gengi hvors árs og vöruinnflutningur jókst um 17,7%. Iðnaðarvörur voru 54,1% alls vöruútflutnings og jókst verðmæti þeirra um 7,9% á gengi hvors árs. Sjávarafurðir voru 40,6% alls vöruútflutnings, í fjórða árið í röð með minni hlutdeild en iðnaðarvörur.

Til baka