Félagsþjónusta sveitarfélaga 2007-2009


  • Hagtíðindi
  • 12. maí 2010
  • ISSN: 1670-4681


Sækja pdf skjal
Árið 2009 nutu 8.060 heimili félagslegrar heimaþjónustu og hafði þeim fjölgað um 196 (2,5%) frá árinu á undan og um 434 (5,7%) frá árinu 2007. Rúmlega þrjú af hverjum fjórum þessara heimila voru heimili aldraðra eða 6.160 (76,4%). Á þessum heimilum aldraðra bjó 7.691 einstaklingur og jafngildir það 20,3% þeirra landsmanna sem eru 65 ára og eldri. Í Reykjavík naut tæplega fjórðungur (24,2%) 65 ára og eldri félagslegrar heimaþjónustu.

Til baka