FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. JÚLÍ 2018

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júní 2018 nam fob verðmæti vöruútflutnings 50,7 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 71,6 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 20,9 milljarða króna.

Í júní 2018 var verðmæti vöruútflutnings 5,9 milljörðum króna hærra en í júní 2017 eða 13,1% á gengi hvors árs. Hækkunina má að mestu rekja til aukins útflutnings á iðnaðarvörum.

Verðmæti vöruinnflutnings í júní 2018 var 11,9 milljörðum króna hærri en í júní 2017 eða 19,9% á gengi hvors árs. Munurinn á milli ára skýrist aðallega af auknum innflutningi á eldsneyti ásamt auknum innflutningi á hrávörum og rekstrarvörum.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

 

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.