FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. JÚNÍ 2018

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 29. júní 2018 14:05 frá upprunalegri útgáfu.

Vöruviðskiptajöfnuður
Í maí 2018 voru fluttar út vörur fyrir 52 milljarða króna og inn fyrir 69,3 milljarða króna fob (73,9 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,3 milljarða króna. Í maí 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 23,6 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í maí 2018 var því 6,3 milljörðum króna lægri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 14,7 milljörðum króna samanborið við 17,5 milljarða króna halla í maí 2017.

Á tímabilinu janúar til maí 2018 voru fluttar út vörur fyrir 236,3 milljarða króna en inn fyrir 299,5 milljarða (319,5 milljarða króna cif). Halli á vöruskiptum við útlönd nam því 63,2 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 71,3 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn janúar til maí er því 8,1 milljarði króna lægri en á sama tíma fyrir ári síðan. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 48,4 milljörðum króna, samanborið við 61,1 milljarð króna á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu fimm mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 37 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 18,5% á gengi hvors árs.¹  Iðnaðarvörur voru 52,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,9% hærra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 40,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 27,2% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var í nær öllum undirliðum sjávarafurða en mestu munar um aukningu í ferskum fiski og frystum flökum.

Innflutningur
Á fyrstu fimm mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 28,9 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 10,7% á gengi hvors árs¹. Mestu munar um innflutning á eldsneyti og fjárfestingu í flugvélum.

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til maí 2017 og 2018    
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Maí Janúar-Maí ári á gengi hvors árs, %
  2017 2018 2017 2018 jan-maí
           
Útflutningur alls fob 49.273,6 52.029,7 199.342,8 236.305,5     19,00    
Sjávarafurðir 21.555,9 24.308,9 75.826,9 96.456,1      27,20    
Landbúnaðarvörur 2.324,1 1.984,7 8.383,9 9.062,7        8,10    
Iðnaðarvörur 23.824,6 24.028,7 110.105,7 124.311,1      12,90    
Aðrar vörur 1.569,1 1.707,5 5.026,3 6.475,5      28,80    
           
Innflutningur alls fob 72.899,2 69.318,3 270.678,0 299.529,6     11,00    
Matvörur og drykkjarvörur 5.122,8 4.787,7 21.570,4 23.876,6      10,70    
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 16.604,5 18.861,7 74.161,7 81.116,5        9,40    
Eldsneyti og smurolíur 8.422,2 10.404,6 25.830,4 38.428,4      48,80    
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 14.505,8 13.732,2 61.149,6 65.177,0        6,60    
Flutningatæki 20.601,3 13.479,7 54.006,7 53.688,0 -      0,60    
Neysluvörur ót.a. 7.622,2 8.043,4 33.834,2 36.959,0        9,20    
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 20,3 8,9 125,1 284,0     127,10    
           
Vöruviðskiptajöfnuður -23.625,5 -17.288,6 -71.335,2 -63.224,2 -   10,00    

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.